Ótrúleg forgangsröðun frétta hjá Sjónvarpinu!

Fyrst er rétt að taka fram að mér þykja fréttamenn Sjónvarpsins almennt hafa staðið sig afar vel í fréttaflutning síðustu mánuðina síðan bankahrunið mikla varð í október. Sjónvarpið hefur sinnt vel því hlutverki sínu að bera okkur almenningi fréttir af ástandi mála og skapa þingmönnum og ýmsum embættismönnum í lykilstöðum aðhald með gagnrýnum fréttaflutningi. En nú að erindinu.

Það er ekki oft sem mér ofbýður það sem fram kemur í fréttum þessa dagana og við Íslendingar erum orðnir ýmsu vanir í þeim efnum en í gær varð ég algerlega orðlausn yfir taktlausri forgangsröðun í dagsskrá Sjónvarpsins tengdum blaðamannafundi er ný ríkisstjórn Íslands kynnti stefnuskrá sína. Ég tek fram að sjálfur hef ég stundað keppnisíþróttir í 30 ár og tel mig hafa góðan skilning á gildi íþrótta en að taka handboltaleik tveggja erlendra ríkja fram yfir fréttamannafund þar sem framtíð íslensku þjóðarinnar er kynnt finnst mér ótrúleg forgangsröðun. Það var klippt á Steingrím J. Sigfússon nýjan fjármálaráðherra þjóðarinnar í miðri ræðu til að koma að íþróttakappleik! Síðar var tilkynnt með skjátexta að afganginum af fundinum yrði sjónvarpað í hálfleik en aftur gerðist það sama - það var klippt á fundinn þegar leikurinn byrjaði að nýju.

Þetta segi ég að hafi verið hrópleg óvirðing við alþingismenn og aðra sem eru að reyna að bjarga þjóðinni úr hinu alvarlega kreppuástandi en þó fyrst og fremst móðgun við fólkið í landinu sem verður nú grimmilega fyrir barðinu á ástandinu. Ef þið ágætu stjórnendur RÚV haldið að fólkið í landinu hafi nú um stundir meiri áhuga á íþróttakappleik en stjórnmálalegri framtíð Íslands þá held ég að þið séuð á regin villigötum í forgangsröðun sjónvarpsefnis.

Sigurður Arnar Ólafsson


Stuðningur frá blakmönnum

Ég fagna þessum hugmyndum um nýja íþróttasjónvarpsstöð enda er það orðið með öllu óþolandi hvernig fjölmiðlar á Íslandi matreiða fréttir ofan í landsmenn. Þar er örfáum útvöldum íþróttagreinum hampað á kostnað annarra og öfgarnar í umfjöllun eru ýmist í ökkla eða eyra. Í þessu samhengi má reyndar allt eins nefna dagblöð þar sem umfjöllun þeirra er einnig fádæma öfgafull og þar fer Morgunblaðið fremst í flokki. Þessi einsleita umfjöllun gerir yngriflokkastarf og heilbrigða uppbyggingu fjölbreytts íþróttalífs í landinu afar erfiða enda er börnum og unglingum talið trú um að það séu ekki nema kannski 3-4 íþróttagreinar sem vert sé að stunda - ég hugsa að flestir íþróttaáhugamenn gætu nefnt þessar greina sem mér eru í huga. Afleiðingar þessa tel ég vera gríðarmikið brottfall unglinga úr íþróttum - sérstaklega á aldrinum 14-18 ára - sem er einmitt aldurinn þegar unglingar fara að spá meira í fjölmiðla og umheiminn. Af hverju að vera æfa íþrótt sem er einskis metin ???

Þar sem ég þekki vel til í blakíþróttinni get ég lýst hvernig þessi mál horfa að mínu mati við þeirri grein. 

Ég hef setið í stjórnum hjá Blakdeild KA í 20 ár og einnig sat ég í stjórn BLÍ í 2 ár og vann m.a. við innleiðingu á krakkablaki á Íslandi þannig að ég tel mig þekkja málið nokkuð vel enda hefur það verið stanslaus barátta að reyna að koma blakíþróttinni á framfæri í fjölmiðlum. Þar virðist engu skipta þó mikill uppgangur sé í blakíþróttinni á Íslandi eftir innleiðingu á krakkablaki 2003 þar sem ungum iðkendum í blaki hefur fjölgað um nær 400% á 5 árum. Einnig er mjög öflug öldungahreyfing í blakinu með um 1000 iðkendur sem er væntanlega fjölmennasta öldungahreyfing landsins kannski á eftir golfinu. Síðast en ekki síst er blak ein af fjölmennustu íþróttum í heimi með um 250 milljón iðkendur í 218 þjóðlöndum. Til gamans má nefna þar sem við KA menn vorum með rússneskan þjálfara fyrir 2 árum að í Rússlandi einu stunda 600.000 manns íþróttina og þar ef eru 25.000 atvinnumenn.

Þrátt fyrir þetta gengur mjög illa að koma íþróttinni í fjölmiðla. Nýjasta dæmið er nú í kring um bikarúrslitaleiki Blaksambandsins sem fara fram nú um næstu helgi.  Þar hefur RÚV hefur ekki ennþá staðfest hvort sjóvarpstöðin ætlar að sýna úrslitaleikina beint. Þetta gerist þrátt fyrir að RÚV hafi sýnt bikarúrslitaleikina í blaki í beinni útsendingu nú nær samfellt á á annan áratug.

Annað dæmi er Morgunblaðið sem birtir ekki nema einstaka fréttir úr blakinu - helst af Íslands- og bikarmeisturum - og svo úrslit í tveimur línum í úrslitadálki blaðsins. Á sama tíma fá ákveðnar íþróttir kannski 2-4 síður í umfjöllun daglega. Þetta eru ótrúlegar öfgar og engan veginn réttlætanlegar að mínu mati. Þetta er auðvitað engin tilviljun heldur meðvituð ritstjórnarstefna blaðsins.

Það eru fjölmargar íþróttagreinar í svipaðri stöðu og blakið hvað fjölmiðlaumfjöllun varðar í landinu. Að mínu mati ættu þessar greinar að snúa bökum saman og brjóta af sér þessa einsleitu umfjöllun. Sjónvarpsstöð er metnaðarfull hugmynd en dýr hugmynd. Kannski mætti byrja á því að sérsamböndin sem finnst að sér vegið tækju sig saman og stofnuðu sameiginlega fréttavef. Sjónvarpstöð gæti svo fylgt í kjölfarið.

Sigurður Arnar Ólafsson 

Höfundur er áhugamaður um íþróttir barna og unglinga


mbl.is Ný íþróttasjónvarpsstöð stofnuð?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Sigurður Arnar Ólafsson

Höfundur

Sigurður Arnar Ólafsson
Sigurður Arnar Ólafsson
Þingeyingur að ætt en Akureyringur í dag. Starfa við upplýsingatækni. Stjórnarmaður hjá Blakdeild KA.
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband